Ekki kennt eftir stundaskrá á Sumardaginn fyrsta

Posted on 20 04, 2016

Ekki kennt eftir stundaskrá á Sumardaginn fyrsta
Engin kennsla verður fimmtudaginn 21.apríl, Sumardaginn fyrsta.

Í staðinn verður haldið geggjað Danspartý í Danskompaní, Sumardaginn fyrsta.
Stelpurnar í E-lítuhópnum, sem er á leið til Malmö í dansferð í vor, halda partýið og er þetta fjáröflun hjá þeim.

Danspartý fyrir B-hópa er kl. 13:30-14:30.
Danspartý fyrir C-hópa er kl.15:00-16:00.
Stelpurnar ætla að dansa með ykkur ýmsa skemmtilega dansa og fara í leiki.
Mikið gaman og mikið fjör!
Aðgangseyrir er 500 krónur og það verður sjoppa á staðnum.

Við hvetjum ykkur til að mæta og vera með og það er líka alveg
sjálfsagt að taka með vini sem ekki eru í dansi:)