Við byrjum aftur 29.mars! :)

Posted on 28 03, 2016

Við byrjum aftur 29.mars! :)

Við byrjum á morgun, þriðjudaginn 29.mars, og fer þá vorsýningarundirbúningur á fullt! Okkur hlakkar svo til!! 😀

Skilaboð til leiklistarnemenda:

Kæru leiklistarnemendur

Nú fer að styttast í vorsýninguna okkar og teljum við mikilvægt að þið náið að æfa atriðin ykkar með Auði eins nálægt vorsýningunni og hægt er. Leiklistin er valtími og eru þeir 11 sinnum yfir önnina. Þeim fer því að ljúka.

Við ætlum þ.a.l. að fresta næstu tveimur leiklistartímum (29.mars og 5.apríl) . Hins vegar verða haldnar hljóðupptökur næstu tvær vikurnar sem þið þurfið að mæta í, við sendum nánari dagsetningu og staðsetningu á þeim bráðlega 🙂

Næsti leiklistartími verður haldinn þann 12.apríl nk.