Nú er búið að setja stundaskránna fyrir vorið 2010 og er hægt að nálgast hana hérna. Ef einhverjar fyrirspurnir eru þá skulið þið ekki hika við að hafa samband í gegnum s.773 7973 eða með tölvupósti, danscentrum@danscentrum.is.
Read MoreÞað er okkur mikil ánægja að tilkynna það að Leifur Eiríksson, B-Boy (breikari), danskennari og tónlistarmaður mun vera að kenna hjá DansCentrum á vorönn 2010. Hann mun kenna strákahópnum ásamt öðrum tímum. Leifur er einn flottasti breikari landsins og mjög vinsæll kennari og erum við því sérstaklega ánægð að fá hann um borð.
Read MoreMikill áhugi er á dansnámi á meðal stráka á Suðurnesjunum. Svo mikill er áhuginn að útlit er fyrir að það verði sérstakir strákahópar hjá DansCentrum. Venjan er að strákar og stelpur æfa saman en það lítur út fyrir að það verði sérstakir strákahópar settir saman því þeir eru svo margir sem hafa haft samband. Það er því ekkert því til fyrirstöðu að strákar sem hafa áhuga á að læra alvöru dans skrái sig því með þessu áframhaldi þá verður DansCentrum með flottasta strákadanshópinn á landinu eftir smá ástundun. Þessi áhugi kemur samt sem áður ekki á óvart þegar litið er til aukinnar dansumfjöllunar svo ekki sé minnst á sjónvarpsþáttinn So You Think You Can Dance þar sem augu íslenskra stráka opnuðust fyrir því hvað dans er flott íþrótt. Flestar skráningarnar hjá strákunum hafa komið frá 12 ára og yngri en vonandi koma fleiri unglingsstrákar á næstu dögum. Við hvetjum alla stráka sem vilja læra flotta dansa og taka þátt í sýningum, að skrá sig sem fyrst því hópurinn verður sterkari því fleiri sem taka þátt. Markmið DansCentrum er að þjálfa upp fjölhæfa dansara sem búa yfir nægri tækni til að geta tileinkað sér sem flesta dansstíla allt frá hip-hop yfir í nútímadans en námið í skólanum nær yfir heilan vetur. Sjá nánar um dansnámið hérna Sjá nánar um dansnámskeiðin...
Read MoreTímataflan verður orðin skýrari um miðjan desember þegar flestar skráningarnar eru komnar í hús. Við reynum að taka tillit til þeirra nemenda sem eru nú þegar með fasta æfingatíma í öðrum greinum, en við biðjum þá nemendur sem eru með slíkar beiðnir að skrá sig sem fyrst og tiltaka beiðnina. Smelltu hér til að skrá þig
Read MoreDansCentrum er nú þegar með yfir 200 aðdáendur á Facebook en þar færðu nýjustu fréttirnar beintt inn á borð til þín. Myndir og myndbönd af nemendum að dansa verða þar einnig aðgengileg. Endilega smelltu hérna ef þú vilt fylgjast betur með öllu sem við tökum upp á að gera.
Read MoreForeldrar barna á aldrinum 6 – 18 ára geta nýtt sér kr.7.000 hvatagreiðslu frá Reykjanesbæ þegar greidd eru skólagjöld hjá DansCentrum. Sjá nánar um hvatagreiðslur á vefsíðu Reykjanesbæjar. Skráðu þig í skólann hérna
Read More