Þaðsem er í þessum category birtist í slider á forsíðu.
Við förum í vetrarfrí frá og með 23.-26.október nk. og verða því ekki tímar á föstudag, laugardag og mánudag. Við hittumst svo hress aftur þriðjudaginn 27.október og fer þá jólasýningarundibúningur á fullt! 🙂
Read MoreÞað er komið að foreldratímum haustannar en þá eru forráðamenn hvattir til þess að horfa á tíma hjá nemendum. Þetta er góð æfing fyrir nemendur að fá að sýna fyrir áhorfendum, auk þess er þetta skemmtilegt tækifæri til að fylgjast með kennslu og sjá það sem við höfum verið að gera í september og október. Foreldratímar eru 12.-15.október! Foreldratímarnir eru sem hér segir: Mán: -B5 –C3 –D1 –D3 Þri: -B1* –B3 –B4 Mið: -C1 –C2 –D2 –E1(vina og paratími) Fim: -A1 –B2 *ATH! Upphaflega átti B1 að vera á fimmtudegi eins og stóð á miðanum þeirra en er nú á þriðjudegi! Minnum einnig á vetrarfrí hjá okkur föstud. 23.okt til mánud. 26.okt. Hlökkum til að sjá sem flesta!...
Read MoreÞá er komið að kynningarfundi fyrir næstu utanlands E-lítuferð 2016! Að þessu sinni verður farið til Malmö, Svíþjóð og býðst nemendum sem eru 14-16 ára(´99-´01) tækifæri á að fara í þessa mögnuðu dansferðJ Skilyrðin til að komast með eru að nemandi æfir að lágmarki 4x í viku (2x jassballet + 2 valtímar) haustönn ´15 og vorönn ´16. Kynningarfundurinn er núna fimmtudaginn 8.október í DansKompaní kl 21:00. Allir foreldrar og nemendur eru velkomin til að kynna sér dansferðina betur:)
Read MoreLaugardaginn 3.október ætlum við í C-hópum að hrista hópinn vel saman og setja flotta stemningu í hópinn fyrir veturinn. Við ætlum að mæta kl.20 upp í DansKompaní, hafa pizzapartí, DansKompaní leikana,vídjó, kvöldvöku og skemmtilegheit. Náttfatapartíinu lýkur kl.10:00 á sunnudagsmorgun. Allar nánari upplýsingar verða sendar í tölvupósti í vikunni:)
Read MoreFöstudaginn 25.september ætlum við í D-hópum að hrista hópinn vel saman og setja flotta stemningu í hópinn fyrir veturinn. Við ætlum að mæta kl.20 upp í DansKompaní, hafa pizzapartí, DansKompaní leikana,vídjó, kvöldvöku og skemmtilegheit. Náttfatapartíinu lýkur kl.10:00 á laugardaginn. Allar nánari upplýsingar inná facebook hópum og í tölvupósti 🙂
Read MoreAllir danstímar, bæði hópar og valtímar hefjast á morgun fimmtudag! 🙂 Við minnum á alla valtímaskráningu hér Einnig minnum við á að engir tímar verða kenndir laugardaginn nk. vegna Ljósanætur 🙂
Read More