Þaðsem er í þessum category birtist í slider á forsíðu.
Núna er sko rétti tíminn til þess að hreinsa veturinn af bílnum! Eldri nemendur í DansKompaní hafa verið í fjáröflun frá því í október að safna fyrir dansferðinni til London sem verður í lok maí og er núna komið að skemmtilegustu fjáröfluninni. Það verður sko þrifið eins og enginn sé morgundagurinn 😉 Dagsetning: næstu helgi, 24. og 25. mars, laugardag og sunnudag Tími: kl.12:00-16:00 Staðsetning: Nesprýði, ská á móti DansKompaní í Grófinni (kort ja.is) TVÆR ÞVOTTALEIÐIR Í BOÐI: 1. Sápubón + tjöruhreinsir …kr.3.000 2. ALÞRIF: Sápubón + tjöruhreinsir + strokið af að innan + rusli hent + ryksugað + gluggar pússaðir ofl. …kr.5.000 Endilega komdu og styrktu hópinn, skjót, góð og skemmtileg þjónusta 🙂 Bestu kveðjur, Ferðalangar úr E1 og E2. Sjá viðburð á...
Read MoreÞað er komið að foreldratímum vorannar en þá eru forráðamenn hvattir til þess að horfa á tíma hjá nemendum. Þetta er góð æfing fyrir nemendur með tilliti til komandi vorsýningar en þá sýna nemendur fyrir fullu húsi í Andrew’s Theatre. Auk þess er þetta skemmtilegt tækifæri til að fylgjast með kennslu og sjá byrjunarferlið á vorsýningaratriðunum. Foreldratímarnir eru sem hér segir: Mið: C3 – D1 Fim: B1 – C1 – D4 Lau: A1 – B2 – C4 – D2 – D3 Hlökkum til að sjá sem flesta!
Read MoreMikil eftirspurn hefur verið hjá stelpunum í C að æfa oftar í viku. Við viljum því bjóða uppá teygjutíma eins og er í boði fyrir D og E hópa. Þetta yrði því annar valtíminn fyrir nemendur í C hópum sem geta þá æft allt að 4x í viku hjá DansKompaní. Þetta verður 60 mín teygjutími (15 mín hröð upphitun) og verður tíminn á fimmtudögum kl.15-16. Allir í C eru velkomnir í prufutíma núna á fimmtudaginn. Í framhaldinu verður hægt að skrá sig og verða tímarnir festir í töfluna ef amk. 10 skrá sig. Þóra Rós ætlar sem sagt að vera með alveg hreint frábæran teygjutíma í stíl við það sem hún lærði út í Mexíkó í sínu dansnámi. Þessir teygjutímar tryggja árangur 🙂 Þessir valtímar munu ekki vera í boði alla önnina eins og aðrir tímar heldur verða þetta 10 skipti og kosta kr.5.000. Við mælum sterklega með þessum tíma fyrir alla sem vilja meiri...
Read MoreLaugardagurinn Allir voru mættir á góðum tíma uppí DansKompaní og eftir að hafa komið dótinu fyrir þá var lagt í hann til Reykjavíkur. Við brunuðum í heimsókn í Þjóðleikhúsið þar sem Stefán Hallur leikari og Ása Andrésdóttir umsjónarmaður í húsinu tóku á móti okkur. Stefán Hallur talaði um hvernig leikrit verða að veruleika og allt það fólk sem þarf til að skapa leikhúsheiminn. Ása fór svo með okkur í rúnt um leikhúsið, baksviðs, undir sviðið, búningageymslu og leikgervadeildina. Þetta var mjög fróðlegt og skemmtilegt og þökkum við kærlega fyrir að fá að koma í heimsókn. Síðan var haldið á okkar aðaláfangastað, Listdansskóla Íslands. Allir skelltu sér í þrjá danstíma hjá frábærum kennurum en það voru Magnea Ýr Gylfadóttir með Jazz, Arna Sif Gunnarsdóttir með Jazz, Sigrún Birna Blomsterberg með Hip Hop og Leifur Eiríksson með Breik-dans. Við tókum þónokkrar myndir og vídjó sem við munum birta mjög bráðlega. Um kvöldið var pizzuveisla áður en kvöldvakan hófst. Þurftum reyndar aftur að herja bardaga við brunavarnarkerfið fyrir kvöldvökuna vegna gufunnar sem kom frá sturtunum en það tókst með stórsigri okkar. Á kvöldvökunni voru nokkur atriði frá nemendunum en D3 reið á vaðið með grínatriði að öllum kennurum DansKompaní, sem var alveg brillíant. C1 kom með þungarokks-dansatriði með andlitsmálningu og alles og einnig komu strákarnir með brandara-atriði. Gestaatriði kvöldsins var frá Verzlunarskóla Íslands en þau sýndu okkur tvo flotta dansa úr sýningunni þeirra Bugsy Malone sem sýnd er í Austurbæ. Síðasta skemmtunin á kvöldvökunni var hópakeppni í kókosbollu-súrmjólkur-hraðhlaupskeppni og er skemmst frá því að segja að D2 bar sigur úr býtum – congratz 😉 Seinna um kvöldið var frjáls stund og var vídjó í einum salnum, danspartí í öðrum salnum og frjálst í þriðja salnum. Sunnudagurinn Morgunmaturinn var á milli kl.08:30-10:00 og þurftu svo allir að ganga frá svefnstöðum sínum og dóti því kennsla hófst í sölunum kl.11:00. Nemendur fóru í mjög fjölbreytta tíma en það voru Inga Maren Rúnarsdóttir með rep úr dansverki hjá Íslenska dansflokknum, Magnea Ýr Gylfadóttir með Jazz, Ásgeir Helgi Magnússon með acro tíma, Arna Sif Gunnarsdóttir með Jazz, Natasha með breik og Sigrún Birna Blomsterberg með Hip Hop. Eftir allt púlið var rölt í sund í Laugardalslaugina. Þegar þarna var komið voru allir orðnir mjög forvitnir með hvaða óvænti viðburður væri í vændum. En við sögðum að sjálfsögðu ekki neitt og sóttum Subway handa hópnum áður en við hoppuðum uppí rútuna og inn í óvissuna. Við þurftum ekki að keyra langt þar sem ferðinni var heitið á Mínus 16, Íslenska dansflokkinn í Borgarleikhúsinu! Það var svo gaman hvað allir voru ánægðir með þessa óvæntu viðbót og heyrðum við eingöngu í mjög jákvæðum röddum bæði fyrir og eftir sýninguna. Þeir sem að fóru í danstímann hjá Ingu Maren sáu þarna dansbrotið sem þau lærðu fyrr um daginn sem var auðvitað mjög skemmtilegt. Það sem kryddaði sýninguna að auki var að bæði Inga Maren og Ásgeir Helgi, sem kenndu fyrr um daginn, voru að dansa í Mínus 16. Það kom upp örlítið fyndin aðstaða þegar við gengum inní stóra sal Borgarleikhússins en margir af krökkunum gleymdu sætanúmerinu sínu og ætluðu að hlaupa inn og ná í fremstu sætin…en við rétt náðum að lagfæra þetta og setja alla í rétt sæti 😉 Eftir viðburðaríka ferð þá var haldið heim á leið og var stoppað í Innri-Njarðvík þar sem um 20 krakkar fóru út en svo var haldið uppí DansKompaní þar sem bílaflotinn beið okkar með flóðlýsingu að sækja sitt fólk. Takk kærlega fyrir ferðina 🙂 Kveðja, Ásta, Ísabella og Dagmar. Sjá fleiri myndir úr ferðinni...
Read MoreNú er komið að því! Ferðin er um helgina og allir orðnir gríðarlega spenntir. Ferðin lengist aðeins í annan endann þar sem við erum með svolítið geggjað “surprise” fyrir hópinn. Það er algert hernaðarleyndarmál hvað það er en trúið mér, það verður enginn svikinn af þessu. Hér koma nokkrir punktar: Mæting kl.12:30 á laugardaginn Lagt af stað kl.12:45 Nemendur munu dansa og gista í Listdansskóla Íslands, Engjateigi. (Ath. Margir nemendur hafa smá pening með til að keypt smá aukanammi fyrir kvöldvökuna) Á sunnudeginum koma nemendur heim örlítið seinna en síðast, um rétt rúmlega kl.22 en það er vegna óvænta atburðarins okkar 🙂 Rútan mun stoppa á einum stað í DansKompaní. Umsjónarmenn í ferðinni eru Dagmar Rós, Ísabella Ósk og Ásta Bærings og er hægt að ná í okkur í s.773 7973. Ferðalisti: Dansfatnaður bæði fyrir jazz og street Muna eftir strigaskóm fyrir street Vatnsbrúsa! 1 sett snyrtilegur klæðnaður sem þau koma í á lau og fara í á sun (v.heimsóknar) Orkuríkt síðdegisnesti fyrir laugardaginn Handklæði + sundföt + 2 sett nærfatnaður Náttföt + tannbursti + tannkrem Svefnpoki og nett dýna Þessi ferð mun án efa slá ferðinni í fyrra við – enda mun óvænti viðburðurinn vera mjög veglegur 🙂 Ef einhverjar spurningar eru þá er vænlegast að hafa samband með tölvupósti. Sjáumst á laugardaginn kl.12:30 Bestu kveðjur, Ásta, Dagmar og...
Read MoreNæst á dagskrá hjá dansnemendum er stóra dansferðin til Reykjavíkur. Þátttakendur munu taka þátt í fjölda danstíma, kynnast nýjum gestakennurum og flottum dansstílum. Skemmtileg kvöldvaka á laugardagskvöldinu og svo lýkur ferðinni á sundferð í laugardalslauginni á sunnudeginum eftir fjöruga danstíma. Mæting í DansKompaní kl.12:30 laugardaginn 25.febrúar Danstímar og gisting verður í Listdansskóla Íslands, í Laugardalnum 3-4 danstímar á laugardeginum sem og sunnudeginum Allt nýjir gestakennarar Nýir dansar Flottir dansstílar Ath! Sér dagskrá fyrir C annars vegar og D hins vegar Ath! Sér dagskrá fyrir stráka og stelpur Kvöldmatur á laugardeginum, morgunmatur og kaffi á sunnudeginum Skemmtileg kvöldvaka á laugardagskvöldinu sem endar á vídjó Stóra dansferðin er í boði fyrir nemendur í C-hópum annars vegar og nemendur í D-hópum hins vegar. Taka skal fram að nemendur í C og D munu bæði taka aðskilda danstíma sem og vera með aðskilda svefnaðstöðu þar sem um tvo mismunandi aldurshópa er að ræða. Skráning í ferðina er hefst 31.jan í móttöku, allar skráningar og greiðslur þurfa að berast í síðasta lagi 10.feb. Allar fyrirspurnir velkomnar í s.773 7973 eða í gegnum danskompani@danskompani.is. *Lágmarksþátttaka er 50 manns. *Forráðamenn hafa fengið tölvupóst um ferðina auk þess sem nemendur fá afhendan miða í næstu tímum. Viðburður á Facebook Upplýsingasíða hér á...
Read More