Þaðsem er í þessum category birtist í slider á forsíðu.
Fyrirlestur haustannarinnar verður 22. nóvember, þriðjudag, kl.20-21. Þessi fyrirlestur er fyrir nemendur í D og E hópum og fáið þið mjög góða yfirferð á því hvernig flott sviðsförðun er. Mætið með snyrtibudduna með ykkur og þá sérstaklega eye-liner. Fyrirlesari: Erna Hrund Hermannsdóttir Erna Hrund er förðunarsnillingur af guðs náð og hefur alveg einstaklega mikla reynslu þrátt fyrir ungan aldur. Hún hefur unnið við fjölmargar leikhússýningar, tískuljósmyndun, auglýsingar ofl. Hún veit hvað það er sem að dansarar eru að leitast eftir á sviði og hefur svörin á reiðum höndum. Erna Hrund er einnig alger tískubomba en hún starfrækir t.d. vefsíðuna Reykjavík Fashion...
Read MoreEins og flestir vita þá eru efstu nemendur DansKompaní með fjáröflun í gangi til að safna fyrir dansferð til London næsta sumar. Þau ætla að framkvæma mjög skemmtilega hugmynd en það er að biðja alla 12 danshópa DansKompaní að mæta í myndatöku sem úr verður fallegt og skemmtilegt dagatal sem þau ætla að selja um allan bæinn til fjáröflunar. Hver hópur fær sinn mánuð og eru nemendur búnir að fá miða með sér heim með upplýsingum um hvenær, hvert og hvernig skal mæta. ATH! Allir mæta í myndatöku uppí DansKompaní nema annað sé tekið fram. Þetta verður skemmtileg upplifun fyrir nemendurnar og frábær minning að eiga myndir af krökkunum saman. Hlökkum til að sjá alla á laugardaginn – Fjáröflunarnefnd E1 og E2. 1000 D4 – Ágúst, “Old School” 1050 D2 – Júlí, Útilega – heima hjá X 1115 D1 – Júní, Grillveisla – heima hjá X 1130 B2 – Október, Bleikur 1200 C2 – Mars, Mottumars 1230 D3 – Janúar, Nýjárspartí 1330 A1 – September, Rigningardans 1400 C1 – Maí, Verkalýðsþema 1430 C3 – Nóvember, Frost 1515 B1 – Desember, Jólagleði 1600 E2 – Febrúar, Ævintýraland 1700 E1 – Apríl, Páskar Ef einhverjar spurningar vakna hringið þá í s.7737973 (móttaka er opin kl.14:30-18:00) eða sendið línu á...
Read MoreNýtt 7 vikna námskeið í Dansmaníunni hefst á mánudaginn (24.okt). Dansmanían er fyrir 20 ára og eldri sem vilja skemmtilega líkamsrækt. Kennt er 2x í viku, kostar kr.12.500. Við viljum sjá sem flestar mæta 😉 Skráning hérna Nánar um námskeiðið hérna
Read MoreNæsta vika verður fjörug því þá verða foreldratímar – þ.e. allir foreldrar nemenda velkomnir að fylgjast með tima. Foreldratímarnir verða sem hér segir: •Mánudag 17.okt – C3, D1 og C1 •Þriðjudaginn 18.okt – C2, D4 og B1 •Miðvikudaginn 19.okt – E1 og E2 •Laugardaginn 22.okt – B2, D2, A1 og D3
Read MoreInnanhússdanskeppni DansKompaní verður haldin laugardaginn 19. nóvember frá kl.16-18 (staðsetning kynnt fljótlega). Keppnin er fyrir alla nemendur í C og D, stráka og stelpur, og hlökkum við til að sjá sem flesta taka þátt. Veitt verða flott verðlaun fyrir 1.-3. sæti ásamt því að allir fá þátttökuverðlaun. Einnig verður æfingakeppni fyrir 6-9 ára þar sem allir fá viðurkenningu fyrir þátttöku. Þetta er frábært tækifæri fyrir yngri krakkana til að spreyta sig á að semja dans og sýna áður en þau ná aldri til að keppa til verðlauna. Keppendur sjá um allt sjálfir, semja atriði, hanna búninga, velja tónlist. Það er alveg ógleymanleg minning að taka þátt! Keppnisreglur fyrir: 10-12 ára 13-15 ára • Keppt er í einstaklings- og hópakeppni (nemandi má keppa bæði í einstaklings- og hópakeppni) • Í hópakeppni eru 3-7 manns saman í hóp • Nemendur mega vera úr sitthvorum hópnum, t.d. 2 úr D1 og 2 úr D3 • Atriði skal vera frumsamið af nemendum • 10-12 ára: Atriði skal vera 1,5-2 mín að lengd • 13-15 ára: Atriði skal vera 2-3 mín að lengd Æfingakeppnisreglur fyrir: 6-9 ára • 1-4 nemendur sýna atriði • Ariði skal vera frumsamið af nemendum • Atriði skal vera 1-1,5 mín að lengd Öll keppnisatriði hjá 10-12 ára og 13-15 ára fá einn æfingatíma með kennara sem hjálpar að fínpússa fyrir keppni. Einnig gefst keppendum tækifæri á að bóka danssalinn til æfinga og er það gert í móttöku. Skráning í móttöku og í gegnum...
Read MoreÍ dag hefst tímabil 2 í valtímunum sem eru á föstudögum. Þá mun hún Linda Ósk, frábær dansari og kennari, kenna næstu fjóra tíma. Allir að mæta súpervel því dansinn verður sýndur á jólasýningunni 😉
Read More