Fréttir

Þaðsem er í þessum category birtist í slider á forsíðu.

Starfsemin komin á fullt – ekki gleyma öllu skemmtilegheitunum á Facebook

Posted on 10 09, 2011

Jæja nú er heilli dansviku lokið og gaman að sjá alla svona glaða í tímum. Það hafa nokkrar fyrirspurnir frá eftirlegukindum verið að berast um hvort laust sé í hópa og biðjum við þá aðila um að senda okkur tölvupóst á danskompani@danskompani.is þar sem fullt er í marga hópana. Svo viljum við benda ykkur á að gera “like” á facebook hjá okkur – þar erum við með svo mikið af myndum og vídjóum úr tímum og sýningum, góðar minningar þar fyrir ykkur til að halda uppá: www.facebook.com/DansKompani Þetta verður frábær vetur!

Read More

DansKompaní á Ljósanótt

Posted on 2 09, 2011

Fimm atriði verða sýnd frá DansKompaní á lau 3.sep á eftirfarandi stöðum: **1430 – Svarta Pakkhúsport **1530 – útisvið Ægisgötu **1630 – Hljómvalshorn #1 – Nokkrar 12 ára stelpur úr C1 – Dans e.Ísabellu Ósk #2 – Nokkrar 14-16 ára stelpur úr D1 og E2 – Dans e.Þóru Rós #3 – Nokkrar stelpur úr E1 – Dans e.Ástu Bærings #4 – Nokkrir strákar úr D4 – Dans e.Leif Eiríks #5 – Kennaraatriði, hluti kennara – Dans e.Þóru Rós Vonandi sjáum við sem flesta 🙂

Read More

Hópar og tímar á haustönn

Posted on 31 08, 2011

Við höfum birt endanlega stundskrá og höfum lagað niðurröðun í hópa þannig að allt passi vel saman. Tölvupóstur var sendur á alla nemendur til að staðfesta í hvaða hóp viðkomandi er í. Ef tölvupóstur hefur ekki borist þá vinsamlegast hafið samband í gegnum danskompani@danskompani.is eða í gegnum s.773 7973. Kennsla hefst á mánudaginn – hlökkum til að hitta alla 🙂

Read More

Stundaskrá | Breytt hópaskipan | Síðasti dagur opna hússins ofl.

Posted on 31 08, 2011

Stundaskrá og breytt hópaskipan Nú þegar skráningin er nær öll komin í hús þá höfum við þurft að gera smávægilegar breytingar á hópaskipan (nöfn á hópum, tímasetning) og munum við senda póst á alla í kvöld til staðfestingar á í hvað hóp þið eruð. Stundataflan verður einnig birt í sinni lokamynd á vefsíðu okkar í kvöld. Kennsla hefst svo af krafti mánudaginn 5.september. Síðasti dagur opna hússins í dag kl.14:30-18:00 *Ganga frá fatapöntun – erum með nokkra nýja hluti, íþróttatoppa, hlýraboli, flotta peysu með opnu hálsmáli og íþróttatösku. Allt á góðu verði ásamt því að við erum með flotta DansKompaní gallann í boði eins og áður. ATH! Við pöntum ekki aftur fyrr en í janúar. *Ganga frá greiðslufyrirkomulagi – ekki gleyma að koma við í dag til þess að ganga frá greiðslufyrirkomulagi : ) Frítt í kynningartíma í dag! Frítt í breik fyrir stráka ‘00-´03 og ´99-´96 kl.15-16 Frítt í street jazz fyrir stelpur ´99-´01...

Read More

Opið hús og frítt í kynningartíma!

Posted on 23 08, 2011

Í næstu viku verður opið hús hjá okkur í DansKompaní, mán-mið, frá kl.14:30-18:00. – Hittið kennarana – Gangið frá skráningu og greiðslu – Pantið DansKompaní fatnað – Og kíkið í frían kynningartíma (sjá hér fyrir neðan og viðburð á Facebook) STRÁKAR ————— Ef þið hafið áhuga á að prufa breik þá er þetta málið. Hérna fáið þið 3 fría breiktíma þar sem þið lærið grunnatriðin og stutta rútínu. Í framhaldinu getið þið svo skráð ykkur í dansnám hjá DansKompaní ef þið fílið þetta í ræmur. Strákar ´00-´03 Mán, þri og mið: kl.15:00-16:00 Strákar ´96-´99 Mán, þri og mið: kl.16:00-17:00 Skráning í kynningartímana í gegnum danskompani@danskompani.is eða í s.7737973. ATH! Þeir strákar sem ákveða að hefja dansnám í DansKompaní fá einn kynningartíma aukalega áður en almenn kennsla hefst 🙂 STELPUR ————— Við bjóðum stelpunum upp á einn skemmtilegan danstíma áður en fjörið hefst fyrir alvöru í vetur. Þessir danstímar eru stílaðir á byrjendur og lengra komna þannig að endilega fjölmennið þetta verður stuð! ´ Stelpur ´95 og eldri Mán: kl.1700-1800 Stelpur ´96-´98 Þri: kl.1700-1800 Stelpur ´99-´01 Mið: kl.1700-1800 Skráning í kynningartímana í gegnum danskompani@danskompani.is eða í...

Read More

Stundatafla haust 2011

Posted on 18 08, 2011

Nú er búið að birta drög að stundatöflu og viljum við minna fólk á að það geta mögulega orðið breytingar á töflunni þar sem skráningar eru í hámarki og geta því bæst við hópar. Við erum að raða nemendum niður á hópa og munu allir fá sendan tölvupóst þegar það er komið, tölvupóstur verður sendur út í byrjun næstu viku. Við biðjumst velvirðingar á þessum töfum en vegna síðbúinna skráninga þá hefur vinnslan tafist hjá okkur. Vinsamlegast komið því á framfæri við fólk að til að tryggja sér pláss fyrir haustönn skal skrá sig sem fyrst...

Read More