Fréttir

Þaðsem er í þessum category birtist í slider á forsíðu.

Næstu dansviðburðir sem við mælum með

Posted on 1 03, 2011

2. mars – Solo, einstaklingskeppni í listdansi 4. mars – Sinnum þrír, skemmtileg dansverk frá Íslenska dansflokknum 6 & 11. mars – Draumurinn, nemendasýning Verzlunarskóla Íslands þetta árið

Read More

Ferðasaga Stóru dansferðarinnar :)

Posted on 1 03, 2011

Við viljum þakka öllum sem fóru í Stóru Dansferðina um helgina. Tvær rútur frá SBK ferjuðu liðið í bæinn og hófst dagskráin á óvæntri heimsókn í Borgarleikhúsið. Þar fengu nemendur að labba um allt leikhúsið með starfsmanni hússins. Einnig fengu þau fyrirlestur um starfsemi Íslenska Dansflokksins og að lokum fengu nemendur að fylgjast í 20 mínútur með æfingu hjá flokknum fyrir næsta verkið þeirra sem verður sett upp næstu helgi. Næst var haldið upp í Listdansskóla Íslands í Engjateig, Laugardal, þar sem þrír danstímar tóku við. Nemendur fóru ýmist í afró, magadans, jazzdans, breik og/eða contemporary. Síðan fóru allir að gera sig til fyrir kvöldið….en það kryddaði einmitt ferðina að gufan frá sturtunni setti brunavarnarkerfið í gang haha. Um kvöldið var pizzapartí, danspartí, ærslagangur og skemmtilegheit. Verzlunarskóli Íslands kom með dansatriði úr söngleiknum Draumurinn og farið var í leiki en í lokin voru tvær dansmyndir settar í gang sem hægt var að horfa á áður en lagst var til hvílu. Á sunnudeginum fóru nemendur í ýmist, jóga, flying low, hip-hop, jazzdans eða breik. Svo ruku allir í Laugardalslaugina sem var síðasti áfangastaðurinn í ferðinni. Rútan sótti þar liðið og voru allir komnir heim í Reykjanesbæ kl.19. Við tókum mikið af myndum og myndböndum sem við munum setja inn á Facebook síðuna hjá okkur og þið getið skoðað það inn á www.facebook.com/danskompani. Þetta verður árlegur viðburður, mjög velheppnuð ferð! :: Við viljum þakka Vífilfell kærlega fyrir stuðninginn en þeir styrktu ferðina með gosi á laugardagskvöldinu – Takk Vífilfell 🙂 :: :: Við viljum þakka öllum kennurunum kærlega fyrir komuna: Arna Sif Gunnarsdóttir Eva Suto Fish Leigh Inga Maren Rúnarsdóttir Íris Björk Reynisdóttir Magnea Ýr Gylfadóttir Sandra Erlingsdóttir...

Read More

Nánar um ferðina um helgina!

Posted on 23 02, 2011

Stóra dansferðin verður um helgina og er þátttakan alveg hreint frábær, hátt í 80 manns sem eru að fara. Þetta verður rosalega gaman og munu allir bæði læra heilmikið nýtt ásamt því að kynnast ennþá betur og skemmta sér vel. Til þess að bæði minna á nokkra hluti sem og svara algengum spurningum þá höfum við útbúið nokkra punkta hérna: Almennir punktar: – Mæting upp í DansKompaní á laugardag í síðasta lagi kl.12:30 – Rútan fer kl.12:45 frá DansKompaní – Við munum dansa og gista í húsakynnum Listdansskóla Íslands, Engjateigi 1, Laugardal – Muna að vera með nesti fram að kvöldmat! Allar aðrar veitingar eru innifaldar í ferðinni – Það verða danstímar, kvöldvaka og skemmtilegheit á laugardeginum – Það verða danstímar, stuð og sundferð á sunnudeginum – Stefnt er á að vera komin tilbaka á sunnudeginum um kl.19:00 – Ef þið þurfið að ná í okkur þá skal hringja í s.773 7973 Hlutir sem mega ekki gleymast: – dansfatnaður til skiptana og dansskór – sundfatnaður og handklæði – svefnpoki og dýna til að sofa á og náttföt – almennt snyrtidót (tannbursti oþh) og nærfatnaður – nesti fram að kvöldmat á laugardegi ATH! Það verða því ekki venjulegir kennslutímar hjá C2, C4 og D2 á laugardeginum. Bestu kveðjur, Starfsfólk DansKompaní s.773...

Read More

Stóra dansferðin!

Posted on 7 02, 2011

Næst á dagskrá hjá dansnemendum er stóra dansferðin til Reykjavíkur. Þátttakendur munu taka þátt í fjölda danstíma, kynnast nýjum gestakennurum og flottum dansstílum. Skemmtileg kvöldvaka á laugardagskvöldinu og svo lýkur ferðinni á sundferð í laugardalslauginni á sunnudeginum eftir fjöruga danstíma. Næst á dagskrá hjá dansnemendum er stóra dansferðin til Reykjavíkur. Þátttakendur munu taka þátt í fjölda danstíma, kynnast nýjum gestakennurum og flottum dansstílum. Skemmtileg kvöldvaka á laugardagskvöldinu og svo lýkur ferðinni á sundferð í laugardalslauginni á sunnudeginum eftir fjöruga danstíma. * Lagt verður af stað kl.12:00 laugardaginn 26.febrúar * Danstímar og gisting verður í Listdansskóla Íslands, í Laugardalnum * 3-4 danstímar á laugardeginum sem og sunnudeginum ** Allt nýjir gestakennarar ** Nýir dansar ** Flottir dansstílar ** Tímatafla birt fljótlega * Ath! Sér dagskrá fyrir stelpur og stráka * Kvöldmatur á laugardeginum, morgunmatur og kaffi á sunnudeginum * Skemmtileg kvöldvaka á laugardagskvöldinu sem endar á nýrri dansmynd sem hefur ekki verið sýnd hérlendis Stóra dansferðin er í boði fyrir nemendur í C-hópum annars vegar og nemendur í D-hópum hins vegar. Taka skal fram að nemendur í C og D munu bæði taka aðskilda danstíma sem og vera með aðskilda svefnaðstöðu þar sem um tvo mismunandi aldurshópa er að ræða. Skráning í ferðina er hafin í móttöku, allar skráningar og greiðslur þurfa að berast í síðasta lagi 19.feb. Allar fyrirspurnir velkomnar í s.773 7973 eða í gegnum danskompani@danskompani.is. *Lágmarksþátttaka er 50 manns. ATH! Allir nemendur fá miða með nánari upplýsingum um ferðina 🙂 Sjá viðburð á facebook:...

Read More

Bíóferðin á morgun – nokkrir punktar

Posted on 4 02, 2011

Bíóferðin verður á morgun og eru hérna nokkrir punktar varðandi hana: – Rútan fer kl.16:00 frá DansKompaní – Rútan kemur um kl.20:30 tilbaka – Þrennutilboð kostar kr.620 og mælumst við til þess að það verði hámarksnammipeningur hjá krökkunum – Ef þið þurfið að ná í okkur þá skal hringja í s.773 7973 Bestu kveðjur, Starfsfólk DansKompaní

Read More

Ráðstefna í kvöld á Ásbrú- DansKompaní á svæðinu

Posted on 1 02, 2011

Í kvöld er staðið fyrir verkefninu “Komdu og hittu kraftmiklar Suðurnesjakonur”. Þarna er samansafn af góðum konum sem reka eigin fyrirtæki og er öllum velkomið að koma og kíkja þarna við. Þetta verður án efa skemmtilegt kvöld og hefst gamanið kl.20 í kvöld (1.febrúar). Nánar um viðburðinn má sjá hér: http://www.skass.org/frettir/komduoghittukraftmiklarsudhurnesjakonur

Read More