Strákar í dansnám

Posted on 26 11, 2009

Mikill áhugi er á dansnámi á meðal stráka á Suðurnesjunum. Svo mikill er áhuginn að útlit er fyrir að það verði sérstakir strákahópar hjá DansCentrum. Venjan er að strákar og stelpur æfa saman en það lítur út fyrir að það verði sérstakir strákahópar settir saman því þeir eru svo margir sem hafa haft samband. Það er því ekkert því til fyrirstöðu að strákar sem hafa áhuga á að læra alvöru dans skrái sig því með þessu áframhaldi þá verður DansCentrum með flottasta strákadanshópinn á landinu eftir smá ástundun.

Þessi áhugi kemur samt sem áður ekki á óvart þegar litið er til aukinnar dansumfjöllunar svo ekki sé minnst á sjónvarpsþáttinn So You Think You Can Dance þar sem augu íslenskra stráka opnuðust fyrir því hvað dans er flott íþrótt. Flestar skráningarnar hjá strákunum hafa komið frá 12 ára og yngri en vonandi koma fleiri unglingsstrákar á næstu dögum. Við hvetjum alla stráka sem vilja læra flotta dansa og taka þátt í sýningum, að skrá sig sem fyrst því hópurinn verður sterkari því fleiri sem taka þátt.

Markmið DansCentrum er að þjálfa upp fjölhæfa dansara sem búa yfir nægri tækni til að geta tileinkað sér sem flesta dansstíla allt frá hip-hop yfir í nútímadans en námið í skólanum nær yfir heilan vetur.
Sjá nánar um dansnámið hérna
Sjá nánar um dansnámskeiðin hérna