Posted on 15 03, 2010
Komdu og prufaðu!
Boogie Woogie – Fimmtudaginn, 18.mars, kl.1930
Boogie Woogie er skemmtilegur stuðdans fyrir pör á öllum aldri. Þessi dans hefur verið kenndur við miklar vinsældir í Háskóladansinum í RVK og viljum við nú kynna ykkur fyrir dýrðum Boogie Woogie.
Finnið ykkur dansfélaga og mætið í gamanið á Boogie Woogie – við lofum skemmtilegri stund.
RnB (MTV style) – Föstudaginn, 19.mars kl.1830
Þessir danstímar eru fyrir þá sem vilja læra heitan RnB dans sem er í anda soft Hip-hop. Þessir tímar eru fyrir 16 ára og eldri, bæði stráka og stelpur. Ef þú fílar ryþmann í RnB þá skaltu mæta í þennan opna kynningar tíma.