Posted on 29 03, 2010
Í dag, mánudag, verður síðasti tíminn hjá 20+ (F) kl.18-1915 og lýkur þá 12 vikna námskeiði í blönduðum dansi. Við fórum í diskó-fönk, street jazz, söngleikjarokk með tilheyrandi lyftum og skemmtilegheitum og enduðum á RnB fíling. Takk fyrir skemmtilegt námskeið!
E1 og E2 eiga breiktíma á þriðjudag á venjulegum tíma en svo verður lokatíminn á miðvikudaginn kl.1830-1930 og ætlum við síðan að kíkja út að borða eftir tímann. Svo hefst framhaldsnámskeiðið strax eftir páska þar sem við undirbúum af krafti atriðið fyrir nemendasýninguna. Það hefjast einnig námskeið fyrir byrjendur sjá hér til hliðar undir “Námskeið-Nýtt!”. Gleðilega páska!