Posted on 11 08, 2010
Mánudaginn 23. ágúst og þriðjudaginn 24. ágúst verður opið hús hjá DansKompaní frá kl.14-18. Allir sem hafa nú þegar skráð sig gefst þarna tækifæri á að hitta kennarana, skoða húsakynnin og ganga frá greiðslufyrirkomulagi. Hægt verður að panta vandaðan DansKompaní fatnað sem seldur er á mjög góðu verði.
Að sjálfsögðu mega allir kíkja við þótt þeir hafa ekki skráð sig en við tökum einnig við skráningum á staðnum – við mælum þó með því að skrá sig sem fyrst hérna á netinu því við erum að gera ráðstafanir fyrir nýja hópa og því er gott að fá skráningarnar inn sem fyrst. Hlökkum til að sjá ykkur öll!