Dansmanían fyrir 20 ára og eldri

Posted on 30 03, 2011

Við höfum verið með 7 vikna Dansmaníu í gangi í allan vetur og hefur verið alveg svakalega gaman í tímunum og þökkum öllum kærlega fyrir þátttökuna. Næsta Dansmanía átti að hefjast 18.apríl næstkomandi en vegna gríðarlegra anna við vorsýninguna hjá yngri nemendum þá verðum við því miður að hætta við það námskeið. Okkur þykir þetta mjög miður enda var komin góð skráning á námskeiðið.
Dansmanían heldur að sjálfsögðu göngu sinni allan næsta vetur en við munum þó bjóða uppá eina stutta, 4 vikna, Dansmaníu í sumar fyrir þá sem vilja halda sér við.