Posted on 9 06, 2011
Framhaldsnemendur á haustönn 2011 þurfa að staðfesta áframhaldandi dansnám svo hægt sé að hefja skipulagningu á næsta dansvetri. Við erum í óða önn að gera drög að tímatöflu haustannar og bæta inn nokkrum nýjum spennandi kennurum.
Forráðamenn hafa nú fengið staðfestingargjald sent í netbankann og með þeirri greiðslu hafa nemendur tryggt sitt danspláss í réttum hópum. Staðfestingargjaldið dregst að sjálfsögðu frá heildargjaldinu en eftirstöðvarnar verða greiddar í haust.
Skráning nýnema hefst 20.júní hér á vefsíðu okkar og í gegnum s.7737973.