Dansarar – nú lærið þið að farða ykkur!

Posted on 10 11, 2011

Fyrirlestur haustannarinnar verður 22. nóvember, þriðjudag, kl.20-21. Þessi fyrirlestur er fyrir nemendur í D og E hópum og fáið þið mjög góða yfirferð á því hvernig flott sviðsförðun er. Mætið með snyrtibudduna með ykkur og þá sérstaklega eye-liner.

Fyrirlesari: Erna Hrund Hermannsdóttir
Erna Hrund er förðunarsnillingur af guðs náð og hefur alveg einstaklega mikla reynslu þrátt fyrir ungan aldur. Hún hefur unnið við fjölmargar leikhússýningar, tískuljósmyndun, auglýsingar ofl. Hún veit hvað það er sem að dansarar eru að leitast eftir á sviði og hefur svörin á reiðum höndum.
Erna Hrund er einnig alger tískubomba en hún starfrækir t.d. vefsíðuna Reykjavík Fashion Journal.