Posted on 3 01, 2012
Ójá! Núna verður sko haft gaman í hádeginu í DansKompaní. Við ætlum að bjóða upp á Dansmaníuna fyrir hressar stelpur 20 ára og eldri þar sem gerðar eru skemmtilegar dansæfingar (ekki gömlu eróbikkæfingarnar 😉 ) með púli, liðleika, dansi og slökun.
Tímarnir eru 50 mínútur og er góð búningsaðstaða til að sturta sig og gera sig sæta áður en farið er í vinnuna aftur.
Námskeiðið er í 7 vikur, kennt á þriðjudögum og fimmtudögum kl.11:50-12:40.
Verð kr.12.500 – ATH! Tilboð ef þrjár koma saman þá kr.8.500.
Nýjir og skemmtilegir kennarar: Dagmar Rós og Ósk Björnsdóttir.