Nýr valtími – Teygjur!

Posted on 16 01, 2012

Nýr valtími – Teygjur!
Þessar erlendu stelpur eru greinilega duglegar að teygja :)

Með dugnaði og ástundun þá nær maður árangri!

Núna bjóðum við upp á þriðja valtímann sem þýðir að nemendur í D og E hópum geta æft allt að 5x í viku hjá DansKompaní. Þetta verður 60 mín teygjutími (15 mín hröð upphitun) og verður tíminn á fimmtudögum kl.20-21. Allir í D og E eru velkomnir í prufutíma núna á fimmtudaginn. Í framhaldinu verður hægt að skrá sig og verða tímarnir festir í töfluna ef amk. 15 skrá sig.

Þóra Rós ætlar sem sagt að vera með alveg hreint frábæran teygjutíma í stíl við það sem hún lærði út í Mexíkó í sínu dansnámi. Þessir teygjutímar tryggja árangur 🙂

Þessir valtímar munu ekki vera í boði alla önnina eins og aðrir tímar heldur verða þetta 10 skipti og kosta kr.5.000.

Við mælum sterklega með þessum tíma fyrir alla, bæði stráka og stelpur.