Posted on 30 01, 2012
Næst á dagskrá hjá dansnemendum er stóra dansferðin til Reykjavíkur. Þátttakendur munu taka þátt í fjölda danstíma, kynnast nýjum gestakennurum og flottum dansstílum. Skemmtileg kvöldvaka á laugardagskvöldinu og svo lýkur ferðinni á sundferð í laugardalslauginni á sunnudeginum eftir fjöruga danstíma.
Stóra dansferðin er í boði fyrir nemendur í C-hópum annars vegar og nemendur í D-hópum hins vegar. Taka skal fram að nemendur í C og D munu bæði taka aðskilda danstíma sem og vera með aðskilda svefnaðstöðu þar sem um tvo mismunandi aldurshópa er að ræða.
Skráning í ferðina er hefst 31.jan í móttöku, allar skráningar og greiðslur þurfa að berast í síðasta lagi 10.feb. Allar fyrirspurnir velkomnar í s.773 7973 eða í gegnum danskompani@danskompani.is.
*Lágmarksþátttaka er 50 manns.
*Forráðamenn hafa fengið tölvupóst um ferðina auk þess sem nemendur fá afhendan miða í næstu tímum.