Posted on 16 09, 2012
Næstkomandi fimmtudag, 20.september, verður fundur kl.20 um E-lítuferðina sem farin verður næsta vor. Eins og kemur fram í útlistun á ferðinni að þá er hún ekki alltaf með sama sniði en það eykur fjölbreytileikann í ferðunum og hjálpar okkur við að kynna nemendur fyrir dansþjálfun á mismunandi stigi.
Nú er fyrirkomulagið svo að nemendur sem eru fæddir ’97, ’96 og ’95 geta sótt um þátttöku í ferðinni. Þurfa því allir á þessum aldri, ásamt forráðamönnum, að mæta á kynningarfund næstkomandi fimmtudag kl.20 uppí DansKompaní.
Hlökkum til að hitta ykkur!