Skráning nýnema hefst 8.júlí

Posted on 6 07, 2013

Skráning nýnema hefst 8.júlí

Við hlökkum til að hitta allt nýja fólkið sem ætlar að hefja dansnám hjá okkur í haust. Við tökum bæði á móti byrjendum og framhaldsnemendum enda erum við með 12 danshópa sem hólfast niður eftir aldri og getu nemenda – það er því lítið mál að finna hóp við hæfi.

Eins og áður þá er margt spennandi um að vera og biðjum við alla um að kynna sér vel framboð á valtímum og fleiru áður en nemendur skrá sig:

Allt um dansnámið og valtímana

Framhaldsnemendur hafa fengið sendan gíróseðil fyrir staðfestingargjaldi haustannarinnar og þegar það er greitt þá er nemandinn sjálfkrafa skráður áfram á næstu önn. Ef gjaldið er ekki greitt fyrir 15.ágúst þá hverfur hann úr netbanka forráðamanns og við getum þá talið og séð hversu mörg laus pláss við getum veitt nýnemum.