Danskeppnin STEPS – 16.nóv

Posted on 3 11, 2013

Danskeppnin STEPS – 16.nóv

Innanhússdanskeppni DansKompaní verður haldin laugardaginn 16. nóvember frá kl.14-16 (staðsetning kynnt fljótlega). Keppnin er fyrir alla nemendur í C og D, stráka og stelpur, og hlökkum við til að sjá sem flesta taka þátt. Veitt verða verðlaun fyrir 1.-3. sæti í þessum tveimur riðlum.

Einnig verður æfingakeppni fyrir 6-9 ára þar sem allir fá viðurkenningu fyrir þátttöku. Þetta er frábært tækifæri fyrir yngri krakkana til að spreyta sig á að semja dans og sýna áður en þau ná aldri til að keppa til verðlauna.

Keppendur sjá um allt sjálfir, semja atriði, hanna búninga, velja tónlist.

Það er alveg ógleymanleg minning að taka þátt!

Keppnisreglur fyrir:
10-12 ára
13-15 ára
• Keppt er í einstaklings- og hópakeppni
(nemandi má keppa bæði í einstaklings- og hópakeppni)
• Í hópakeppni eru 3-5 manns saman í hóp
• Nemendur mega vera úr sitthvorum hópnum en sama aldursflokki, t.d. 2 úr D1 og 2 úr D3
• Atriði skal vera frumsamið af nemendum
• 10-12 ára: Atriði skal vera 1,5-2 mín að lengd
• 13-15 ára : Atriði skal vera 2-3 mín að lengd

Æfingakeppnisreglur fyrir:
6-9 ára
• 1-4 nemendur sýna atriði
• Ariði skal vera frumsamið af nemendum
• Atriði skal vera 1-1,5 mín að lengd

Öll keppnisatriði hjá 10-12 ára og 13-15 ára  fá einn æfingatíma með kennara sem hjálpar að fínpússa fyrir keppni. Einnig gefst keppendum tækifæri á að bóka danssalinn til æfinga og er það gert í móttöku.

Skráning í móttöku og í gegnum danskompani@danskompani.is

Sjá viðburð á facebook