Posted on 3 07, 2017
Þá fer undirbúningur fyrir haustönn að fara á fullt! Við erum nú að vinna hörðum höndum að því að gera næsta dansár sem fjölbreyttast og skemmtilegast :) Allir nemendur sem skráðir voru á vorönn 2017 fá sendan gíróseðil með staðfestingargjaldi fyrirhaustönn. Þessi giróseðill hverfur úr netbanka greiðanda 4.ágúst nk. ef hann er ekki greiddur og hleypum við þá nýjum nemendum að í laus pláss. Gjaldið gengur upp í gjald haustannar og er óafturkræft. Stundaskrá haustannar birtist á heimasíðu okkar í lok ágúst Bestur sumarkveðjur!