Hér er lögð áhersla á að dansa og vinna í sviðsframkomu, ákveðnari líkamsbeitingu, sjálfsöryggi og útgeislun á sviði. Þessir tímar eru frábærir fyrir dansþyrsta nemendur, því að þetta eru 100% danstímar! Tekin er stutt upphitun (c.a. 10 mín.) og svo er bara dansað eftir það.
Þessi tími er fyrir nemendur í:
– C hópum
– D hópum
– E hópum
Klæðnaður nemenda:
-Nemendur eru í tásugrifflum eða á tánum.
-Þröngur buxur/leggins
-Þröngur bolur
-Ef nemandi er með sítt hár verður að taka það upp frá andliti