Stóra DansFerðin 7.-8.mars

Posted on 4 03, 2015

Stóra DansFerðin 7.-8.mars

Helgina 7.-8.mars ætla D og C hópar í DansKompaní  að fara í Stóru Dansferðina! Þetta verður rosalega gaman og munu allir bæði læra heilmikið nýtt ásamt því að kynnast ennþá betur og skemmta sér vel :)

Til þess að bæði minna á nokkra hluti sem og svara
algengum spurningum
þá höfum við útbúið nokkra punkta hérna:

 

 

 

Almennir punktar:

– Mæting í DansKompaní kl.13:15

– Rútan fer kl.13:30 frá DansKompaní

– Förum í heimsókn til Íslenska Dansflokksins í Borgarleikhúsinu

– Danstímar og gisting í Listdansskóla Íslands, Laugardal

– Það verða danstímar, kvöldvaka og stemning á lau

– Það verða danstímar, stuð og sundferð á sun

– Heimkoma á sunnudegi kl.19:00

– Ef þið þurfið að ná í okkur þá skal hringja í s.773 7973

—————

Hlutir sem mega ekki gleymast:

– dansfatnaður til skiptana og dansskór

– sundfatnaður og handklæði

– svefnpoki og dýna til að sofa á og náttföt

– almennt snyrtidót (tannbursti oþh) og nærfatnaður

– nesti fram að kvöldmat á laugardegi

—————

Hægt er að lesa nánar um ferðina hér