Posted on 16 09, 2010
DansKompaní fatnaðurinn hefur heldur betur slegið í gegn og verður gaman að sjá á næsta skólaviðburði þegar allir klæðast fatnaði skólans. Við erum nú að taka niður pantanir á DansKompaní fatnaði og verður hún send frá okkur á þriðjudagsmorguninn kemur. Þeir sem að misstu af síðustu pöntun skulu endilega hafa samband við okkur sem fyrst til að vera með, næst verður pantað í janúar.
Þar sem við erum ekki með verslun þá er ekki hægt að treysta á að við eigum fatnað á lager, og því um að gera að taka þátt í þessari pöntun.