Posted on 27 05, 2011
DansKompaní nemendur verða með dansatriði annað árið í röð á Sjóaranum síkáta. Við hlökkum mikið til að sýna þrjú atriði frá nemendasýningunni en það verða hóparnir C4, C3 og D1 sem munu sýna í þetta skiptið.
Þemað í þeirra atriðum eru Grease, Blues Brothers og Fame.
Sýnt verður sunnudaginn 5.júní kl.16:00-1615 á flottu sjómannadagshátíðinni í Grindavík.
Upplýsingar til nemenda sem munu sýna sunnudaginn 5.júní:
-Nemendur í D1 mæta kl.1400 í DansKompaní (tilbúin í búningum)
-Nemendur í C4 og C3 mæta kl.1415 í DansKompaní (tilbúin í búningum)
-Við rennum yfir dansinn nokkrum sinnum og brunum svo til Grindavíkur að sýna
ATH! Dansað er á stétt, þannig að C3 mun sýna í svörtum buxum, hvítum bol og svartri hettupeysu.
D1 og C4 mun dansa í svörtum jazztátiljum eða svörtum sokkum.