Teygjutími fyrir C – Prófaðu á fim!

Posted on 6 03, 2012

Teygjutími fyrir C – Prófaðu á fim!
Þessar erlendu stelpur eru greinilega duglegar að teygja :)

Með dugnaði og ástundun þá nær maður árangri!

Mikil eftirspurn hefur verið hjá stelpunum í C að æfa oftar í viku. Við viljum því bjóða uppá teygjutíma eins og er í boði fyrir D og E hópa.  Þetta yrði því annar valtíminn fyrir nemendur í C hópum sem geta þá æft allt að 4x í viku hjá DansKompaní. Þetta verður 60 mín teygjutími (15 mín hröð upphitun) og verður tíminn á fimmtudögum kl.15-16. Allir í C eru velkomnir í prufutíma núna á fimmtudaginn. Í framhaldinu verður hægt að skrá sig og verða tímarnir festir í töfluna ef amk. 10 skrá sig.

Þóra Rós ætlar sem sagt að vera með alveg hreint frábæran teygjutíma í stíl við það sem hún lærði út í Mexíkó í sínu dansnámi. Þessir teygjutímar tryggja árangur 🙂

Þessir valtímar munu ekki vera í boði alla önnina eins og aðrir tímar heldur verða þetta 10 skipti og kosta kr.5.000.

Við mælum sterklega með þessum tíma fyrir alla sem vilja meiri liðleika!