Foreldratímar í næstu viku

Posted on 12 10, 2012

Foreldratímar í næstu viku

Í næstu viku bjóðum við foreldra velkomna að fylgjast með tíma hjá krökkunum. Þarna gefst krökkunum tækifæri á að sýna nýlærða takta og að æfa sig að hafa áhorfendur. Foreldratímarnir verða sem hér segir:

  • Mánudag 15.okt – C1, C3, D1 og D3
  • Þriðjudaginn 16.okt – A1, B1, B2, C4 og D4
  • Miðvikudaginn 17.okt – C2 og D2
  • Föstudaginn 19.okt – B3

Foreldrar, afar og ömmur, systkini og aðrir sem áhuga hafa er velkomið að kíkja í tímana 🙂

Svo minnum við alla á vetrarfríið sem verður föstudaginn 26.okt og mánudaginn 29.október. Svo verður reyndar Stóri Myndatökudagurinn okkar í vetrarfríinu á föstudeginum – tölum nánar um það eftir foreldravikuna. Alltaf hægt að nálgast viðburðadagatal skólans.

Bestu kveðjur, danskennarar DansKompaní.