Vegna mikillar eftirspurnar ætlum við að bjóða upp á tvo strákahópa í vetur, yngri og eldri hóp. Yngri hópurinn er fyrir stráka fædda 2007-2011 og sá eldri fyrir stráka fædda 2002-2006.
Frá janúar 2010-september 2014 vorum við verið með fasta kennslu í breikdansi yfir veturinn og hafa margir strákar notið frábærrar kennslu hjá Leifi Eiríkssyni, Nicholas Fishleigh, Kristófer Aroni Garcia, Jón Axel Jónassyni og Andra Frey Baldvinssyni.
Á haustönn 2015 var mikill fjöldi stráka sem sótti um dansnám hjá DansKompaní. Við ákváðum því að stofna Strákahóp í janúar 2016 þar sem áherslan verður á Street Dans. Strákunum býðst að sjálfsögðu að taka valtíma með dansnáminu. Sjá stundaskrá hér
Skráning er nú opin í Strákahópana fyrir dansárið 2017-2018
Verðskrá hér (neðst á síðunni)
Fyrirspurnir skal senda á danskompani@danskompani.is