Kennsla skv.stundaskrá vikuna 25.-29. apríl.
Sýningarvikuna 2.-7. maí verða sviðsæfingar og því ekki kennt eftir stundaskrá.
Æfingar í sýningarviku: Þriðjudaginn 3.maí kl.17:30-17:45 í DansKompaní.
Hópur A2 sýnir aðeins á fyrri sýningu.
*Kennari: Dagbjört, Hrafnhildur Una og Valur Axel
Upplýsingar fyrir sýningardaginn 7.maí:
- Mæting uppí leikhús, Andrews Theatre, kl.12:00.
- DansKompaní kemur með: Brúna boli og skott.
- Nemendur koma með: Svartan hlýrabol/nærbol/ballettbol, svartar leggins og svartar nærbuxur/hjólabuxur. Strákar koma með svartar stuttbuxur. Passa að það séu engin logo.
- Nemendur dansa á tánum eða í ljósum tásugrifflum.
- Hár: Stelpur með tvo háa snúða og strákar snyrtilega greiddir með hár frá andliti.
- Muna nesti!!
- Muna að koma með bakpokasem úlpa, föt og alles passar ofan í – þá er allt örugglega á sínum stað.
- Foreldrar A2 eru beðnir um að kaupa miða á fyrri sýninguna sem er kl.13:00. Nemendur í A-hópum sýna eingöngu á fyrri sýningunni. Vinsamlegast kaupið miða tímanlega þar sem þar sem undanfarin ár hefur verið uppselt á fyrri vorsýningu skólans.
- Nemendur í A2 eiga að vera sóttir á sitt svæði í leikhúsinu eftir fyrri sýningu.
Upplýsingar um miðasölu
Ef einhverjar spurningar vakna þá skal hafa samband í s.454 0100 eða í gegnum tölvupóst.