Liðleiki

Langar þig að komast í spíkat? Vilt þú ná að klóra þér í eyranu með fætinum? Þá er þetta tíminn fyrir þig!

Í byrjun tímans verður hitað upp og síðan teygjum við á! Unnið verður að því að liðka þá vöðva sem við notumst við í dansinum á öruggan og öfgalausan hátt með hjálp slökunnar. Megin áhersla verður lögð á splitt og spíkat. Það er minni hætta á meiðslum ef að dansarar (og íþróttafólk almennt) tekur sér góðan tíma í að teygja.

Við mælum eindregið með því að þeir sem skrá sig í liðleika skrái sig einnig í Fimfit til að styrkja líkamann á móti slökuninni. 

Þessi tími er fyrir nemendur í:

          – C hópum

          – D hópum

          – E hópum

Klæðnaður nemenda:

          -Nemendur eru á tánum eða í sokkum.

          -Hlýjum buxum sem hefta ekki hreyfingar

          -Hlýrri peysu sem heftir ekki hreyfingar

          -Ef nemandi er með sítt hár verður að taka það upp frá andliti