Vorsýning 2025 – Upplýsingar fyrir nemendur


Á vorsýningunni í ár munu við fagna 15 ára afmæli skólans! En þá munu nemendur DansKompaní dansa söguna Jungle Book!

Í ár verður sýningin Jungle Book sett upp á stóra sviði Borgarleikhússins! Sýningin verður haldin 26.apríl kl.11:30 og 14:30
Nemendur og kennarar hafa unnið hörðum höndum að því að gera sýninguna sem flottasta og hlakkar okkur til að sjá þig í dansgleðinni með okkur!

Eins og áður verður þetta einstaklega fjölbreytt danssýning þar sem fjöldinn allur af dansstílum, sem kenndir eru hjá skólanum, verða í forgrunni.

Fjöldi kennara með fjölbreytta danssköpun koma að sýningunni en það eru Helga Ásta Ólafsdóttir, Ingibjörg Sól Guðmundsdóttir,  Hrafnhildur Una Magnúsdóttir, Valur Axel Axelsson, Laufey Soffía Pétursdóttir, Guðbjörg Telma Þorvaldsdóttir, Elísabet Eva Erlingsdóttir, Alexandra Rós Þorkelsdóttir, Sólrún Glóð Jónsdóttir, Maria Araceli og Chantelle Carey. Aðstoðarkennarar eru Guðný Kristín Þrastardóttir, Freyja Marý Davíðsdóttir Birgitta Fanney Bjarnadóttir, Sara María Aradóttir, Birta Rós Árnadóttir, Silja Kolbrún Skúladóttir, Guðlaug Emma Erlingsdóttir

Miðasala hefst 18.apríl á tix.is og hjá miðasölu Borgarleikhússins

 

Hér geta forráðamenn og nemendur nálgast þær upplýsingar sem varða vorsýninguna, laugardaginn 26.apríl ásamt æfingum í vorsýningarviku.

Vinsamlegst smellið á hópinn sem að nemandinn er í til að vita allt um mætingu, búninga o.þ.h.
Ath!

  • Þeir nemendur sem eru í valtímum taka til sín þær upplýsingar sem beint er til þeirra
  • Í vorsýningarvikunni 21.-25.apríl verður ekki kennt eftir stundaskrá. Stundaskrá vorsýningarviku má finna hér >>

A1

A2

A3

A4

B1

B2

B3

B4

B5

C1

C2

D1

D2

E1

Akademía

AkademíaX